Vatnsvikan
Vatnsvikan hefur heldur betur staðið undir nafni. Vikan hófst á því að krakkarnir fengu tækifæri til að sýna veiðiklærnar með dorgi við Reykjavíkurhöfn. Fiskarnir voru eitthvað að fela sig á mánudaginn svo margir fóru heim með öngulinn í rassinum og engan afla, en þónokkrum tókst þó að landa fisk og jafnvel fiskum. Flestir voru krakkarnir glaðir með að fá að prófa að veiða, og var þetta fyrsta veiðiferð margra, og ekki ólíklegt að fleiri fylgi í kjölfarið.
Á þriðjudeginum var haldið í Siglunes þar sem margir réru árabátum, og svipað margir fengu far með bátnum Jónasi Feita, en sagan segir að einhverjir í þeirri ferð hafi séð glitta í draugaskip á einni bryggjunni. Eftir sjóferðina héldum við svo í Nauthólsvík þar sem krakkarnir léku við hvurn sinn fingur, ýmist á sjó eða landi.
Í dag, miðvikudag, var dagurinn heldur betur blautur. Eftir smá leiki í Selinu og á skólalóðinni var haldið á túnið bak við Vesturbæjarlaugina. Þar var búið að koma upp risastórum dúk bleyttum með vatni og sápu og krakkarnir og eitthvað af starfsfólkinu mættu vopnuð hinum ýmsustu gerðum af vatns-vopnum. Svo hófst eitt heljarinnar vatnsstríð þar sem ekkert virtist jafn vinsælt eins og að bleyta starfsfólkið sem mest. Dúknum var svo síðar breytt í rennibraut þar sem fólk komst á fljúgandi ferð.
Eftir mikinn fyrir utan sundlaugina var svo haldið í sund þar sem hamagangurinn hélt áfram hjá mörgum meðan aðrir létu fara vel um sig í heita pottinum.
Framundan er svo ferð í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn á fimmtudaginn, þá er nauðsynlegt að muna eftir pulsum og pulsubrauði, og á föstudaginn er svo dagsferð í Vatnaveröld í Keflavík og þá er mikilvægt að muna eftir sunddótinu.