Útivistarvika
Vikan byrjaði með leikjum og skralli í Hljómskálagarðinum í gær og var svo farið að sjá Brúðubílinn við Fríkirkjuveg. Dagurinn í dag byrjaði snemma með strætóferð að Úlfarsfelli þar sem fellið átti að ganga. Vagnstjórinn var ekki alveg jafn samstarfsfús og við vonuðumst eftir og þurftum við að fara úr bílnum aðeins lengra frá gönguleiðinni en áætlað var. Gerðum við nú samt gott úr öllu saman og gengum upp fellið á öðrum stað en samt ekki upp á topp. Eftir að hafa klifið snarbratta hlíðina fórum við í Lágafellslaug þar sem við náðum nokkrum ferðum í rennibrautunum. Í strætó á leið heim voru nokkrir litlir orðnir þreyttir og fengu sér smá kríu í leið 15 inn í vesturbæ.