ÍTR Gott Frostaskjól Rafræn
 
 

Útivistarvika

Á fimmtudaginn fórum við í Heiðmörk. Þar skoðuðum við Maríuhella og flest allir úr hópnum fóru niður í helli sem grafinn var ofaní jörðina. Þar var sögð saga af dreka sem hafði eitt sinn búið í hellinum. Eftir hellaferðina fórum við í skotbolta í góða veðrinu.

Í dag, föstudag héldum við í Siglunes. Þar fórum við í siglungu á Jónasi feita og aðrir fóru á árabát. Þegar siglingunum var lokið fórum við í Nauthólsvík. Þar léku veðurguðirnir heldur betur við okkur og skemmtu allir sér frábærlega vel. Pylsur voru grillaðar ofaní svanga kroppa sem höfðu leikið sér heilmikið, ýmist í fótbolta, blaki, handbolta eða við bursl ofaní sjónum og pottunum.

Í lokin minnum við á nýjar myndir sem komnar eru inn á netið. Þær er hægt að finna undir hnappinum myndir 2009-2010/útivistarvika.

Takk fyrir vikuna og góða helgi.

Kv. Starfsfólk Selsins