Frostaskjól
 
 

Um Selið

Frístundaheimilið Selið í Melaskóla hefur umsjón með skipulagðri tómstundadagskrá fyrir börn í 1. - 2. bekk.

Dagskrá hefst við lok venjulegs skóladags (13:40 hjá 1. bekk og 13:45 hjá 2. bekk) og henni lýkur kl. 17:00.

Markmið Selsins eru í raun tvíþætt.

Í fyrsta lagi að bjóða upp á skipulagða og metnaðarfulla tómstundadagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og hver einstaklingur fær að njóta sín.

Í öðru lagi er markmiðið að bjóða foreldrum upp á skemmtilegan og öruggan stað fyrir börn þeirra að leika sér á. Eins að foreldrar geti verið vissir um að eftirlit með börnunum sé skilvirkt og faglegt en þó á mannlegum nótum.

Í Selinu leitast starfsfólk við að leiðbeina börnunum í leikjum og ýmiss konar verkefnum, þar sem áhersla er lögð á samvinnu, vinskap og skemmtun.

Skrifstofa Selsins: 411-5720 / 411-5721
GSM sími Litla-Sels (1.bekkur): 695-5061
GSM sími Stóra-Sels (2. bekkur): 664-7658
selid@itr.is