Íþróttaskólinn er fyrir Öll börn sem eru í 1. og 2. bekk og eru tímarnir í íþróttasal Melaskóla.
Íþróttaskólinn er fyrir 6 og 7 ára börn í Reykjavík og er samvinnuverkefni:
-íþróttafélaga
-Íþróttabandalags Reykjavíkur
-Grunnskóla Reykjavíkur
-Reykjavíkurborgar
Íþróttaskólarnir eru reknir af íþróttafélögum í skólahverfinu og starfræktir innan frístundaheimila ÍTR.
Íþróttatímarnir eru í íþróttahúsinu í Melaskóla og eru á þeim tíma sem börnin eru í frístundaheimilinu.
Íþróttaskóli er byggður á þeirri hugmynd að útfæra íþróttir í leikrænu formi og gera alla að þátttakendum á eigin forsendum. Í íþróttaskólanum eru margar íþróttir kynntar og prófaðar í einföldu formi sem höfða til barnanna. Áhersla er lögð á grunnþjálfun og leiki en ekki á frammistöðu, árangur eða keppni.
Markmið íþróttaskóla er:
-að stuðla að því að fyrstu kynni barna af íþróttum verði jákvæð
-að efla líkamlega og félagslega færni barna
-að gera íþróttaiðkun aðgengilega
-að bjóða öllum að vera þátttakendur
-að gera íþróttir skemmtilegar
-að gefa börnum tækifæri til að leika sér með félögum sínum
-að sjá til þess að börn upplifi sig á jákvæðan hátt og fái aukið sjálfstraust
Ekki þarf að útskýra í mörgum orðum hve mikilvægt það er fyrir börn að fá fjölbreytta hreyfiþjálfun. Börn með slakan hreyfiþroska eru síður tilbúin í ýmsa námsþætti í skólanum sem krefjast einbeitingar og fínhreyfinga. Í íþróttum og leikjum læra börn að fara eftir settum reglum. Þar er einnig vettvangur til að þjálfa m.a. einbeitingu, umburðarlyndi og tillitssemi. Það er mikilvægt fyrir börn að læra að vera í hópi og takast á með jákvæðum formerkjum. Það skiptir t.d. máli að börn þori að vera þátttakendur með öðrum börnum í hópleikjum í fímínútum í grunnskólanum.
Þegar allt kemur til alls er aðal málið þó að hafa gaman :)
1.bekkur er í íþróttaskólanum á föstudögum
Fyrsta holl kl. 15:00-15:40
Annað holl kl. 15:45-16:25
2.bekkur er í íþróttaskólanum á mánudögum
Strákar kl. 14:10-14:50
Stelpur kl. 14:50-15:30