Heilir dagar í Selinu

Heilir dagar í Selinu eru á þeim dögum sem hefðbundin kennsla fellur niður, það er á starfsdögum kennara, foreldraviðtalsdögum, í jólafríum og páskafríum þar sem því verður við komið.
 
Selið opnar ekki fyrr á skertum skóladögum nema það sé auglýst sérstaklega, það er þegar skóladagurinn er styttri en venja er hjá krökkunum af einhverjum orsökum.

Frá og með áramótum 2007-2008 borga foreldrar aukalega 890 kr. fyrir hvern heilan dag. Skrá þarf börnin sérstaklega á þá fyrir áður auglýstan skilafrest og er skráningin bindandi. Foreldrar verða rukkaðir fyrir hvern dag sem barnið er skráð hvort sem barnið nýtur þjónustunnar eður ei. Gjaldið fellur niður ef upp koma veikindi hjá barninu séu veikindin tilkynnt samdægurs.
Þau börn sem ekki eiga skráða vistun þá daga sem heilir dagar eru, er hægt að skrá allan daginn. Þá greiða foreldrar fyrir allan daginn eða 2x 890,-

Á heilum dögum er reynt að bjóða upp á spennandi dagskrá, oft eitthvað óhefðbundið eins og vettvangsferðir. Á heilum dögum koma börnin með 2x nesti með sér, til að borða í 10:00 hressingu og í hádeginu en síðdegishressingin er á sínum stað.
 
Opnunartími Selsins heila daga er: 8:00-17:15