*Að auka samfélagsvitund og félagsþroska barna með leikjum og verkefnum er henta þroska hvers og eins.
Leiðir:
- Bjóða upp á fjölbreytta dagskrá svo allir finni eitthvað við sitt hæfi.
- Leggja áherslu á mismunandi dagskrárliði, samanber aldur barnanna.
- Hafa eins mikið val og börnin ráða við með tilliti til þroska.
- Vinna markvisst með barnalýðræði svo börnin geti haft áhrif á eigið líf og starfsemina í Selinu.
- Bjóða upp á einstaklingsmiðaða þjónustu til að koma til móts við þarfir hvers og eins.
Markmið og Leiðarljós Selsins:
Barnalýðræði
Í Selinu er lögð áhersla á að börnin geti sagt sína skoðun á starfinu og því sem það er að fást við. Haldnir eru fundir með krökkunum í hverjum aldursflokki fyrir sig.
Leitað er ráða hjá krökkunum varðandi kaup á leikföngum, þau fá þá að koma með uppástungur og svo er unnið úr þeim. Eins koma þau með hugmyndir að dagskrárliðum sem einkenna óhefðbundna daga eins og föstudagsfjör.
Reynt er að láta börnin velja á milli hluta sé þess kostur og hafi þau færni og þroska til.
Vinátta:
- Við erum góð við aðra
- Við hjálpumst að
- Við erum öll vinir
- Við leikum fallega saman
- Við leyfum öllum að leika með
Virðing:
- Við notum falleg orð þegar við tölum við hvort annað
- Við komum vel fram við aðra
- Við göngum hljóðlega um gangana
- Við notum inniröddina inni
- Við förum vel með dót og bækur
-Við leyfum öðrum að klára að tala
Öryggi:
- Við göngum á göngum
-Við köstum ekki dóti
- Við förum varlega þegar við leikum okkur
- Við sitjum fallega við borðin
- Við göngum frá útifötum og töskum
- Við merkjum okkur rétt og erum þar sem við erum merkt
Samvinna:
- Við erum stillt þegar við erum í röð
- Við hjálpumst að við að ganga frá
- Við skiptumst á og deilum dóti
-Við erum þolinmóð og sýnum tillitsemi
Umfram allt er mikilvægt að börnin skemmti sér vel í Selinu og hafi gaman af því starfi sem þar fer fram. Dagskrárliðir eru fjölbreyttir svo hver og einn fái notið sín og leitast er við að láta börnin velja hvað þau taka sér fyrir hendur (háð þroska og getu hvers og eins).