ÍTR Barnasáttmáli Frostaskjól Rafræn
 
 

Þriðjudagur 15. júní Árbæjarsafn og Eliðarárdalur

Við byrjuðum daginn á því að syngja afmælissönginn fyrir Tinnu því hún varð 7 ára í dag. Svo borðuðum við nesti, gerðum okkur til og lögðum af stað í Árbæjarsafn. Þegar þangað var komið tók á móti okkur leiðsögukona í “gömlum fötum” sem fræddi okkur og leiddi um bæinn. Skoðunarferðin endaði svo í stóru húsi sem heitir Landakot, þar var ótrúlega mikið af gömlu og nýju dóti sem mátti leika sér með og ótrúlega mikið fjör. Eftir leikinn borðuðum við nestið úti í grasinu og lékum okkur svo aðeins meir eða skoðuðum okkur betur um. Svo lögðum við af stað í göngutúr um Elliðarárdalinn. Við gengum í gegn um skóginn, fundum sprek, týndum blóm og skoðuðum okkur um þar til við fundum fína laut þar sem við fengum okkur aðeins að drekka og gátum spjallað saman áður en við lögðum af stað í strætóinn sem keyrði okkur heim í Skýjó. J