Þriðjudagurinn 22. júní
Dagurinn hófst á morgunstund þar sem börnin komu saman og lærðu lagið Drakúla. Eftir að allir höfðu skemmt sér saman og hlegið af textanum í laginu sóttu allir töskurnar sína og fengu sér nesti til þess að hlaða líkaman af orku áður en haldið væri af stað í lítið ferðalag. Eftir nesti söfnuðust börnin saman í tvöfalda röð við Skýjaborgarhliðið og var lagt af stað á vit ævintýranna. Við tókum strætó niður á Hlemm þar sem við þurftum að skipta um strætó. Eftir smá bið á Hlemmi kom loksins vagninn okkar og var því ferðinni heitið niður á Ylströndina í Nauthólsvík. Þegar komið var niður á strönd fengu þeir sem vildu fara að busla í vatninu að fara í sundföt og skemmta sér, þau sem höfðu ekki áhuga á því fundu sér eitthvað við sitt hæfi.
Eftir að góða stund niður á strönd var hópnum smalað saman á nýjan leik og var sest niður og snæddur hádegisverður. Fóru nokkrir dropar að falla á okkur og var skyndilega tekin ákvörðun um að breyta upphaflegu skipulagi. Í stað þess að fara í leiki í Öskjuhlíðinni var ákveðið að taka strætó niður í bæ og kíkja á Borgarbókasafnið. Þar gátu börnin fundið sér eitthvað skemmtilegt lesefni eða sest niður í setustofunni og horft á leik Frakklands og Suður Afríku.
Rétt rúmlega þrjú komum við aftur í Skýjaborgir eftir skemmtilegan og vel heppnaðan dag.
