Sirkússkóli föstudaginn 25. júlí
Í dag fórum við í Hljómskálagarðinn og lærðum ýmis sirkúsbrögð.
Við mættum í Hljómskálagarðinn á hádegi og borðuðum nesti. Að því loknu mætti sirkússtjórinn Wally ásamt félögum sínum og þeir kenndu okkur ýmiskonar brögð. Við lærðum að húlla, snúa diski á priki og halda fjöður stöðugri á enninu! Dagurinn var frábær í alla staði!