ÍTR Barnasáttmáli Frostaskjól Rafræn
 
 

Skýjaborgir 1 - Mánudagur 4

Þetta var svo sannarlega mánudagur. Ég væri að ljúga ef ég segði að Skýjaborgir ættu stórleik í dag. Líkt og hjá enska landsliðinu vantaði liðshugsun. Hlaupið var um án stefnu og markmiðs. Ekki var hugsað um heildina. Hvergi sást sá karakter sem við vitum að býr í okkur. Starfsmenn voru mjög hlessa því að sjálfsögðu getum við gert betur. En horfa skal á björtu hliðarnar. Það var örugglega heilmikið lært á Sjóminjasafninu sem við heimsóttum um hádegi. Við fengum leiðsögn og gengið var um borð varðskipið Óðinn. Um tvöleytið lögðum við svo aftur af stað í Skýjó og vorum við þar í frjálsum leikjum það sem eftir var af deginum. Vonandi hlupu þá krakkarnir þennan mánudag af sér. Á morgun er nýr dagur og ný tækifæri. Koma svo Skýjó!