ÍTR Barnasáttmáli Frostaskjól Rafræn
 
 

Miðvikudagurinn 30. júní og fimmtudagurinn 1. júlí

Mánaðamót í Skýjaborgum. Þessir dagar einkenndust af breytingum á skipulaginu okkar. Á miðvikudeginum ætluðum við að fara í Þjóðmenningarhúsið til að skoða uppstoppuð dýr en þeirri sýningu var hætt. Nú bjóða þeir upp á handritasýningu en við héldum að það væri ekkert fyrir okkur og redduðum því í staðinn leiðsögn hjá Emmessís. Það var fróðlegt og skemmtilegt að sjá og krakkarnir stóðu sig rosalega vel. Að sjálfsögðu var boðið upp á ís.
   Á fimmtudeginum var áætlunin að fara á Reynisvatn og að leika sér í ævintýraskóginum þar en því var aflýst vegna lélegs veðurs og þess í stað var förinni heitið upp í Kópavoginn. Þar heimsóttum við Náttúrufræðistofuna og grennsluðumst fyrir um alls kyns (uppstoppuð) dýr. Að því loknu fórum við upp á bókasafnið sem er þar fyrir ofan og allir gátu slappað af og fundið sér eitthvað að lesa. Þar sem krakkarnir höfðu verið svo duglegir allan daginn fengu þeir kókóskúlur þegar við komum aftur í Skýjaborgir.
 
Tilvitnun dagsins: "Það er ekkert í djúpunum sem ekki er hægt að finna í fjörunni."
 
Maður gæti haldið að þetta kæmi frá Wittgenstein sjálfum.
 
Yfir og út!