Ýmsar upplýsingar
Hér má sjá foreldrahandbók frístundaheimilanna:
Frístundaheimilið er opið á virkum dögum eftir að skóla lýkur til kl. 17.15 og er staðsett á þremur stöðum: Vesturvallagötu 10 (hús á skólalóð), í skúr bak við húsið og inni í skóla. 1.-2. bekkur hefur aðsetur sitt á þessum stöðum en 3.-4. bekkur hefur flust í Frostheima, nýju safnfrístundina sem er staðsett við Frostaskjól (áður Þrekhúsið).
5 dagar í viku kr. 8.365/mánuð
4 dagar í viku kr. 6.820/mánuð
3 dagar í viku kr. 5.270/mánuð
2 dagar í viku kr. 3.710/mánuð
1 dagur í viku kr. 2.160/mánuð
Ef nýtt er þjónusta kl. 8.00 - 14.00 á foreldradögum og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það kr. 890 á dag. Á ofangreindum dögum geta börnin eftir sem áður dvalið á frístundaheimilunum frá kl. 14.00 - 17.15. Þeir sem velja að greiða með boðgreiðslum (VISA eða Mastercard) fá afslátt af dvalargjaldi sem nemur kr. 150 á mánuði.
Í Skýjaborgum er síðdegishressing á vegum skólans en ÍTR rukkar fyrir kr. 2150.
Ef breyting verður á gjaldskrá verður það tilkynnt greiðanda með minnst mánaðar fyrirvara.
Hægt er að ráðstafa frístundakortinu til lækkunar á dvalargjöldum en síðasti dagur til þess er 15. hvers mánaðar. Sjá
www.fristundakort.is
Leiðbeiningar um frístundakort:
Skóladagatal Vesturbæjarskóla: