BARNAMET

Barnamet er nýjung sem tókum upp í Vesturbænum að danskri fyrirmynd, hér má sjá danska síðu sem dæmi: http://www.rekordbog.dk/index.php?type=content&id=3&menu=2
Hugmyndin með Barnametum er að börnin læri að vinna saman, setja sér takmark og ná því.  Þarna fá börnin viðurkenningu á sinni sköpunargáfu og fái að vera "best" í einhverju á þeirra eigin forsendum.
 
Fyrsta metið
 
Miðvikudaginn 28. október var sett met í "skutlukasti" þar sem 120 börn köstuðu skutlum á sama tíma á fótboltavellinum.
 
Annað metið
 
Þriðjudaginn 2. febrúar var búinn til stærsti snúður sem vitað er um, eða um 80 cm í þvermál.  Hann var búinn til í kjallara Skýjaborga.
 
Þriðja metið
 
Fimmtudaginn 18. febrúar var heimsins lengsti krítaði ormur gerður í kringum Vesturbæjarskóla.  Það voru öll börnin í bæði 1. og 2. bekk sem bauðst að taka þátt í að kríta orminn.  Það fór fram í útivistinni og það má sjá skemmtilegar myndir af barnametunum á heimasíðunni í myndaalbúminu.