Íþrótta- Barnasáttmáli Um´sóknir Frístundakortið
 
 

Tveir bikarar í hús og ómæld gleði

 
 
Nú eru kominn pistill inn sem og  glæsilegar myndir frá kassabílarallýinu sem pabbi hennar Sunnu í 1. bekk tók og var svo almennilegur að láta frístundaheimilið hafa.
 
Fjölmiðlar sýndi viðburðinum mikla athygli og hér að neðan eru tenglar sem áhugasamir geta kíkt á:
Frétt frá mbl:
 
Frétt á RÚV:
 
Frétt á Stöð2:
 
Upplýsingar um sumardagskrá:

Óhætt er að segja að dagurinn hafi gengið frábærlega, að minnsta kosti ef stuðst er við mælikvarðann ánægð börn, því það voru þau bersýnilega. Skrúðgangan var hávær og skemmtileg og vakti mikla athygli gangandi vegfarenda og búðareiganda sem þustu út með myndavélarsímana sína. Gaman var að sjá hvað börnin nutu sín, ekki af því að það var hátíðsdagur samkvæmt dagatali, heldur af því að þetta var þeirra dagur, þeirra hátíð. Þegar komið var að kassabílaraalýinu magnaðist svo spennan en börnin stóðu sig engu að síður með stakri prýði. Undraland fékk verðlaun fyrir flottasta bílinn sem börnin ákváðu í sameiningu að yrði dreki þetta árið þar sem okkar litur var grænn. Bíllinn vakti einnig athygli fréttamanna sem vildu endilega fá viðtal við ökumenn sem þeir veittu og léku hreint á alls oddi. Ekki má láta undir höfuð leggjast að minnast á það að Undraland fékk einnig verðlaun fyrir snörustu starfsmennina og vakti það mikla kátína barnanna. Sem sagt, tveir bikarar í hús og Undraland ótvíræður sigurvegari dagsins. En einnig má segja að eftir svona dag séu allir sigurvegarar. Að lokinni verðlaunaafhendingu og skemmtiatriðum töframanns sem fóru vel ofan í börnin var haldið heim á leið´með strætó syngjandi og trallandi.