Upplýsingar
Frístundaheimilið Undraland er starfrækt eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur til kl. 17:15. Leitast er við að hafa starfið sem fjölbreyttast svo allir finni eitthvað við sitt hæfi. Undraland skiptist í þrjá hópa eftir árgöngum, fyrsti bekkur er með aðstöðu sína á róluvellinum við Frostaskjól og er með íþróttasalinn tvo daga í viku. Annar bekkur á heimastofu í 325 inni í skólanum en þriðji og fjórði í 326. Þeirra valstöðvar eru í stofunum tveimur oo í íþróttasalnum.
Mánaðargjald er kr. 8365. Síðdegishressing er í boði fyrir 2150 kr. á mánuði. Upp á hana er boðið í matsal skólans um það bil hálftíma eftir að skóladegi lýkur hjá börnunum.
5 dagar í viku kr. 8.365/mánuð 5 dagar í viku kr. 2150/mánuð
4 dagar í viku kr. 6.820/mánuð 4 dagar í viku kr. 1.720/mánuð
3 dagar í viku kr. 5.270/mánuð 3 dagar í viku kr. 1.290/mánuð
2 dagar í viku kr. 3.710/mánuð 2 dagar í viku kr. 860/mánuð
1 dagur í viku kr 2.160/mánuð 1 dagur í viku kr. 430/mánuð
Þegar frí er í skólanum á virkum dögum er opið í Undralandi frá kl. 8 um morguninn. Þá er auglýst sérstaklega eftir skráningu þeirra barna sem eiga að mæta og rukkað er aukalega fyrir tímann frá kl. 8-13:30 kr 890. Það þarf að skila inn eyðublöðum vegna þeirrar skráningar.
Til að sækja um dvöl í frístundaheimilum er farið á Rafræna Reykjavík https://rafraen.reykjavik.is/pages/ Uppsögn skal vera skrifleg og þarf að berast umsjónarmanni fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin þá gildi næsta mánuð á eftir.
GSM: 695-5054
Sími á skrifstofu: 411-7138