Orð dagsins
Tungumálið er lykill okkar að annars luktum dyrum heimsins og því er gaman að segja frá því að dagskrárliðurinn Orð dagsins hefur nú verið tekin í gagnið. Eitt orð eða hugtak er tekið fyrir hverju sinni og fá börnin þá að spreyta sig og velta vöngum yfir merkingu orðsins. Þetta er hin fínasta skemmtun og góð hugarleikfimi svo ekki sé minnst á hagnýtt gildi þess að fara um ranghala tungumálsins sem er okkur svo kært. Hollt og gott er að fá tilfinningu fyrir þessu og efla þannig málvitund sína, því aukin málþroski leiðir til aukins skilnings og aukin skilningur leiðir til innihaldsríkara lífs. Svo einfalt er það.