ÍTR
 
 

Fréttir

3.9.2010

Fyrsta vikan í Undralandi

Þá er fyrtsa vikan í Undralandi senn á enda og gaman að segja frá því að biðlistinn er fyrir bí - historí. Krakkarnir hafa staðið sig með stakri prýði og spranga hér um með bros á vör með bekkjarfélögum sínum. Og eins og ávallt er það sá mælikvarði sem gengið er út frá. Í undralandi reynum við að samþætta jákvæðan aga - sem vefur örmum sínum utan um starfið og passar upp á að við verðum ekki glundroðanum að bráð - og frjálsum leik sem verður að teljast sá þáttur sem starf okkar hverfist um. Þegar börnin mæta hittumst við á valfundi þar sem við förum yfir dagskrá dagsins og allir geta valið það sem þeim langar til að gera yfir daginn. Á valfundinum er einnig kjörið tækifæri til þess að slá á létta strengi í bókstaflegri merkingu með gítar við hönd og syngja hástöfum eða taka fyrir orð dagsins, sem yfirleitt mun vera einhver dygð sem krakkarnir fá að spreyta sig á. Að valfundi loknum höldum við yfir í síðdegishressingu hvar börnin geta skellt í sig kolvetnum, próteini og fitu. þegar börnin öll eru svo orðin södd og sæl er haldið til leiks. "Grunntónn tilverunnar er meinlaust grín" sagði sobeggi afi og börnin eru honum eflaust sammála, en lífið er líka frjáls leikur og það sýna þau í verki hér í Undralandi hvort sem það er í dótakrók, púðahorni, í spilum, eða í útivist í tuðrusparki eða kúluspili. Þannig er skipulag dagsins hjá okkur í Undralandi. Einnig er vert að taka það fram að línur eru farnar að skýrast hvað varðar íþróttaskólann og hefst hann föstudaginn 10. september. Í næstu viku (6.-10.sept) byrjar svo DoReMi tónlistarskólinn, kirkjustarf og fótboltaæfingar og munum við hjálpa þeim börnum sem eru skráð í ofanverðar tómstundir að mæta á réttum tíma. Tvær fyrrnefndu tómstundirnar fara fram í skólastofum hér í Grandaskóla en fótboltaæfingarnar eru út í KR heimili og verður þeim börnum fylgt svo framarlega sem þau eru tólf eða fleiri á leið á æfingu. Fleira var það ekki í bil - góðar stundir.   &n

1.6.2010

Tveir bikarar í hús og ómæld gleði

 
 
Nú eru kominn pistill inn sem og  glæsilegar myndir frá kassabílarallýinu sem pabbi hennar Sunnu í 1. bekk tók og var svo almennilegur að láta frístundaheimilið hafa.
 
Fjölmiðlar sýndi viðburðinum mikla athygli og hér að neðan eru tenglar sem áhugasamir geta kíkt á:
Frétt frá mbl:
 
Frétt á RÚV:
 
Frétt á Stöð2:
 
Upplýsingar um sumardagskrá:

[ MEIRA ]

Fleiri fréttir