Selið er ekkert B-lið!
Í dag tókum við strætó niður í Elliðárdal og gengum þar í fallegri náttúru baldusbráa og birkitrjá og fórum í leiki inní skógarrjóðri í blíðskaparverðri. Gengum því næst upp í Árbæjarlaug, sem var töluvert labb og því kærkomið að fá að busla aðeins.
Á morgun ætlum við að finna áhugaverðar dýrabækur á bókasafninu og kannski eitthvað um fiska því svo seinnipartin munum við reyna fyrir okkur í dorgi og klárum svo vikuna með ferð í Náttúrugripasafn Kópavogs og svo í sund á föstudaginn. Hlökkum til!
Kv. Stuðlið Selsins