Ungmennaráð
Haustið 2001 voru sett á laggirnar ungmennaráð í öllum hverfum Reykjavíkurborgar að tilstuðlan Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Í dag starfa 8 ungmennaráð í jafnmörgum hverfum borgarinnar. Starfstími hvers ráðs eitt ár í senn og hefst starfsárið 1. október ár hvert. Ungmennaráðin hafa svo með sér samráðs-og samstarfsvettvang, Reykjavíkurráð ungmenna.
Tilgangur:
• Að þeir sem eru yngri en 18 ára geti fengið að taka þátt í lýðræðinu í landi okkar, þó að þeir séu ekki með kosningarétt.
• Hver og einn hafi eitthvað um sitt eigið líf að segja og fái þar með ábyrgð á sjálfum sér.