Fréttir og tilkynningar
Neon ball | Frosti 03.05.2012
Neon ball fimmtudaginn 3.maí fyrir 10-12 ára :)
Grænn dagur og Unicef dagurinn! | Frostheimar 03.05.2012
Í gær var grænn dagur í Frostheimum og voru nokkur börn sem voru svo til alveg græn frá toppi til táar, en það er alltaf mjög gaman að sjá börnin taka þátt af heilum hug!
Með hækkandi sól! | Frostheimar 30.04.2012
Nokkrar ungar stúlkur tóku sig til í síðustu viku og fóru út með starfsmanni til að hreinsa drasl af lóð Frostheima, nær og fjær og eiga þakkir skilið fyrir hjálpsemina.
Opið hús í góða veðrinu | Skýjaborgir 23.04.2012
Síðasta föstudag skein sólin í heiði og yljaði okkur í Skýjaborgum með geislum sínum. Barnamenningin blómstraði út um allt og yljaði okkur einnig um hjartaræturnar. Foreldrar mættu á opið hús og glöddust með okkur yfir kaffibolla og barnalist. Myndir verða settar á heimasíðuna síðar.
Sumar 2012 | Skýjaborgir 23.04.2012
Nú er búið að opna sumarvef ÍTR og er slóðin http://sumar.itr.is. Skráning í sumarstarfið er á http://rafraen.reykjavik.is
Opið fyrir skráningu í sumarfrístund! | Frostheimar 23.04.2012
Nú er búið að opna fyrir skráningu í sumarfrístund í frístundaheimilin og þegar smellt er á borðann til hægri opnast vefgátt yfir á sumarfrístundasíðu Reykjavíkur.