Fréttir og tilkynningar

Fjör í klúbbavali

14.02.2012

Algjört klúbba/smiðju æði hefur gripið Selið. Krakkar í 1. bekk fóru í Ráðhúsið um daginn að skoða Lególand í tengslum við Vetrarhátíð. Í Leikseli var hinn síungi Geir var með teikninámskeið, Guðrún og Ragnheiður með sögusmiðju þar sem búnar voru til sögur og fara þær svo í sýnilegt form, með leik eða teikningum. Einar sér um Hundaklúbb og kom hann með hundinn sinn Sölku sem vakti mikla lukku hjá krökkunum og fóru þau t.d. í lítinn göngutúr saman. Eva og Stefanía sjá um leikjaklúbb sem fer fram í íþróttasalnum en þar er farið í marga skemmtilega leiki. Hinn frumlegi Allskonarklúbbur er ætíð vinsæll en þar eru framkvæmdar hinar ýmsu hugmyndir krakkanna eins og rólóferðir og ratleikur. Skartgripaklúbbur heppnaðist mjög vel og var mjög vinsæll hjá stelpunum í 2. bekk, en þar voru búnir til ýmsir skartgripir eins og armbönd og hálsfestar. Þannig að nóg er um að vera hjá okkur í Selinu :)

Kveðja, starfsfólk Selsins. 




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit