Fréttir og tilkynningar

Börn eru gullnáma...

16.02.2012

Fleiri ungir vísindamenn hafa bæst í hóp hinna og eru ekki síður áhugasamir. Þá eru drengirnir í FIFA smiðjunni hæstánægðastir með sína smiðju, enda virðist fótbolti vera áhugamál númer eitt, tvö og þrjú. Leirsmiðjan gekk vel og settu börnin lokahönd á verkin sín í gær og fengu síðan að taka þau með sér heim. Þegar litið var inn til barnanna í Apasmiðju, voru þau í mjög einbeitt að skoða myndir af hinum ýmsu öpum og ætluðu síðan að teikna myndir af þeim. Leikbrúðusmiðjan gengur afar vel og bíðum við hin spennt eftir leikriti frá þeim sem fyrst. Kvikmyndasmiðjan er full af upprennandi kvikmyndatökumönnum, en þau voru á fleygiferð um húsið í gær að taka viðtöl við ýmsa starfsmenn Frostheima.

Í næstu viku eru svo ýmsir uppákomu dagar eins og Bolludagur, þar sem við ætlum að gæða okkur á ljúffengum bollum, og Öskudagur þar sem við verðum með Öskudagspartý í Frostheimum. Vegna starfsmannafjölda, getum við einungis tekið á móti þeim börnum sem skráð eru á miðvikudögum í Frostheima.

Þá koma nýjar myndir frá útskriftar-óvissuferðinni, sem reyndist vera hellaferð í dag.

 




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit