A.T.H. Dagskrá næstu daga:
Öskudagur á morgun
Við tökum á móti börnunum aðeins fyrr en venjulega - allir mega koma í búning í skólann og Selið! Við sláum köttinn úr tunnunni, förum í öskudagsbingó, bjóðum uppá andlitsmálingu og ýmislegt fleira skemmtilegt. Allir fá smá sælgæti hjá okkur á morgun.
Vetrafrí
Á fimmtudaginn og föstudaginn er vetrafrí í skólanum og Selinu - lokað verður því í Selinu þá daga!
Stjórnendabreytingar
Í vetrarfríinu mun Andri Birgisson taka við verkefnastjórastöðu Selsins og Sunna Kristín Hilmarsdóttir tekur við aðstoðarverkefnastjóra stöðunni. Ég Dórothea mun flytja yfir í Frostheima og taka við verkefnastjórastöðunni þar.
Ég þakka kærlega fyrir góð kynni og gott samstarf á liðnu skólaári. Hlakka svo til að hitta mörg ykkar í haust í Frostheimum.
Bestu kveðjur,
Dórothea