Stjörnuverið í Frostaskjóli 12.-16. mars 2012

Stjörnuverið er sýndarheimur þar sem áhorfendur sitja inni í kúlulagahvelfingu og sérstakt sýningartæki varpar mynd af stjörnuhiminum á veggi hennar.
Frostaskjól vill samvinnuverkefni fyrir okkur öll  í Vesturbænum þar sem þemað er Sólkerfið.  Í því felst að setja upp aðstöðu í hverfinu fyrir stjörnutjald og innkaup á fræðsluefni sem nýst getur öllum skólum og frístundastarfi í Vesturbæ.  Eitt af starfsmarkmiðum SFS  fyrir árið 2012 undir ,,Víðtæk þekking, færni og árangur" er að leggja aukna áherslu á raunvísindi.

Tengiliður vegna stjörnuvers í Frostaskjóli er Guðrún Björk Freysteinsdóttir, deildarstjóri unglingasviðs. Hægt er að ná í hana í síma 411-5700 eða senda tölvupóst á gudrun.bjork.freysteinsdottir(hjá)reykjavik.is.

Fyrir áhugasama er hægt að vita meira um stjörnuverið á þessari síðu: http://www.natturumyndir.com/

Þið sem eruð að föndra og gera einhver skemmtileg verkefni tengd þessu megið gjarnan senda á okkur myndir og frekari upplýsingar til að aðrir geti lært eitthvað nýtt.

Hugmyndir að föndri má sjá hér:

http://spaceplace.nasa.gov/menu/do/

 

 



 







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit