Frístundamiðstöðin Frostaskjól
Frostaskjól 2, 107 Reykjavík
sími: 411-5700
gsm: 695-5058
netfang: frostaskjol@itr.is
Félagsmiðstöðin Frostaskjól var opnuð með pompi og prakt í febrúar 1986. Síðan þá hefur þjónusta við hverfisbúa aukist mikið og Frostaskjól breyst í frístundamiðstöð.
Frístundamiðstöðin Frostaskjól býður börnum og unglingum í Vesturbæ upp á fjölbreytt félags- og tómstundastarf þar sem áhersla er lögð á forvarnir og að beina þeim inn á braut heilbrigðs og jákvæðs lífernis.
Í Frostaskjól er starfræktur Frístundaklúbburinn Frosti sem er tómstundaklúbbur fyrir börn í 5.-7. bekk Granda-, Vesturbæjar og Melaskóla.
Frostaskjól hefur umsjón með fjórum frístundaheimilum, Selinu, Skýjaborgum, Undralandi og safnfrístundaheimilinu Frostheimum fyrir 3. og 4. bekk., sem og félagsmiðstöðinni Frosta.
Í Frostaskjóli starfar stór hópur af fólki á öllum aldri, með fjölbreytta menntun og viðamikla reynslu af starfi með börnum og unglingum.