Fréttir og tilkynningar
Fréttabréf | 17.02.2012
Febrúarfréttabréf 2012 er komið á heimasíðu Skýjaborga.
Magnað myrkur | 10.02.2012
Vetrarhátíð 2012 ( www.vetrarhatid.is ) hefur yfirskriftina MAGNAÐ MYRKUR og höfum við verið að skemmta okkur hér í Skýjaborgum með þessu þema. Við höfum búið til svakalega magnað myrkur hér og leikið okkur í því. Á þriðjudaginn fórum við í kjallara og lékum okkur í algjöru niðamyrkrki og tókum myndir út í loftið sem eru auðvitað mjög skrýtnar því þótt flassið lýsi allt upp augnablikið sem myndin er tekin þá vissi myndatökumaður ekkert hvort það myndi heppnast að hafa einhvern með á myndinni.
Egyptalands- og múmíuklúbbur | 10.02.2012
Það er alltaf svo gaman í Skýjó og hugmyndaflugið í starfinu okkur er ótakmarkað. Arnar er t.d. með þennan skemmtilega klúbb á miðvikudögum þar sem börnin fræðast um Egyptaland í kjallara. Þau skrifuðu nafnið sitt með hýeróglýfum og svo brugðu þau á leik í íþróttasal með klósettpappír og léku múmíur.
Sjáið myndaalbúmið á heimasíðunni.