Frístundaheimilið Selið í Melaskóla hefur umsjón með skipulagðri tómstundadagskrá fyrir börn í 1. - 2. bekk.
Dagskrá hefst við lok venjulegs skóladags (13:40 hjá 1. bekk og 13:45 hjá 2. bekk) og henni lýkur kl. 17:00. Selið er opið til 17:15 alla daga
Markmið Selsins eru í raun tvíþætt.
Í fyrsta lagi að bjóða upp á skipulagða og metnaðarfulla tómstundadagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og hver einstaklingur fær að njóta sín.
Í öðru lagi er markmiðið að bjóða börnum upp á skemmtilegan og öruggan stað að leika sér á meðan foreldrar sinna öðru. Eins að foreldrar geti verið vissir um að eftirlit með börnunum sé skilvirkt og faglegt en þó á mannlegum nótum.
Í Selinu leitast starfsfólk við að leiðbeina börnunum í leikjum og ýmiss konar verkefnum, þar sem áhersla er lögð á samvinnu, vinskap og skemmtun.
Verkefnisstjóri Selsins er Andri Birgisson og aðstoðarverkefnisstjóri er Sunna Kristín Hilmarsdóttir.
Skrifstofa Selsins: 411-5720 / 411-5721