Fréttir og tilkynningar

| 30.03.2011

Nú 1. apríl breytist vinnutími starfsólks aðeins í Skýjaborgum, nokkrir fara fyrr heim á daginn og við aðlögum starfsemina þeim breytingum með því að láta öll börnin vera í Skýjaborgahúsinu á 1. hæð eða úti eftir kl. 16:30.

 Við erum öll jöfn 
Mannréttindi og rigning | 28.03.2011

Síðasta vika var ansi votviðrasöm og höfðu börnin gaman að því að sulla í pollum og verða svolítið blaut. Þá kom sér vel að vera með aukaföt í töskunni. Mannréttindi var orð vikunnar og markmiðið að kenna börnum að við erum öll jöfn, sama hvers kyns, kynþáttar, þjóðar eða trúar við erum.

 Álfateikning úr Skýjaborgum 
Frásagnarlist og fleira | 01.03.2011

Í vetrarfríinu fórum við starfsfólk Skýjaborga í smiðjur því við erum jú alltaf að læra. Við gerum svolítið af því að fara á fræðslur og læra nýja leiki, spil, föndur, og fleira sem nýtist í starfi með börnunum.

Fjölskylduskemmtun í vetrarfríinu
Fjölskylduskemmtun í vetrarfríinu | 18.02.2011

Fjölskylduskemmtun í vetrarfríinu Þriðjudaginn 22. febrúar verður dagskrá í og við Vesturbæjarlaug 13:00-14:30 Keppni milli fjölskyldna í ýmsum skemmtilegum þrautum 14:00-16:00 Notalegheit í sundi, tónlist, rjúkandi kakó og kleinur í boði Sjáumst!

Gjald vegna stakra daga
Gjald vegna stakra daga | 02.02.2011

Þar sem gjaldskrárbreyting á sér stað núna 1. febrúar mun gjald vegna stakra daga hækka. Af þessum sökum reynist nauðsynlegt að innheimta gjald vegna stakra daga í janúar núna um mánaðarmótin. En slík innheimta hefur að jafnaði farið fram einu sinni á önn og mun næst fara fram í lok skólaársins.

Nýtt fréttabréf Skýjaborga
Nýtt fréttabréf Skýjaborga | 31.01.2011

Nýjasta fréttabréf Skýjaborga er komið inn undir "Upplýsingar til foreldra" og "Tengd skjöl".

  
Nýtt ár, nýtt fjör | 13.01.2011

Nýtt ár í Skýjaborgum hefst með nokkrum breytingum. Íþróttaskólinn hefur verið lagður niður en við í Skýjaborgum hættum að sjálfsögðu ekki að nota íþróttasalinn til leikja og íþróttaiðkunar. Áhugaverðir klúbbar eru líka komnir af stað.

  
Tilkynning um gjaldskrárbreytingu | 28.12.2010

Tilkynning Til foreldra og forráðamanna barna/unglinga vegna frístundaheimila og frístundaklúbba á vegum ÍTR Fyrir liggur ákvörðun Reykjavíkurborgar um breytingu á gjaldi vegna þjónustu frístundaheimilanna og frístundaklúbbanna. Frá og með 1. febrúar 2011 verður gjaldið eftirfarandi: ...

 Nína segir frá. 
Rauði krossinn | 20.12.2010

Nína frá Rauða krossinum kom í heimsókn í síðustu viku og sýndi börnunum myndir og dót frá Malaví í Afríku. Þarna mátti sjá í hvað peningarnir fóru sem söfnuðust í jólabasarnum 2009 og eitthvað svipað verður gert fyrir þau 120.000. sem söfnuðust þann 9. desember í Frostaskjóli.

  
Danssýningar | 15.12.2010

Sesselja danskennari hefur verið að kenna krökkunum frábæra hluti í vetur og í gær sýndu krakkarnir í 2. bekk hvað þeir höfðu lært. Sýning 1. bekkjar var á föstudag og á báðum sýningunum var góð mæting hjá foreldrum.







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit