Fréttir og tilkynningar

Dans, dans, dans!

12.12.2011

Í þessari viku er Dans, dans, dans!-þema í Skýjaborgum þar sem mikið dansæði hefur gripið börnin. Í dag tóku 15 börn þátt í stórskemmtilegri danskeppni í íþróttasal þar sem sjá mátti ýmsa ólíka dansstíla eins og break, nútímadans og samkvæmisdans. Allir fengu viðurkenningarskjal að launum og voru veitt verðlaun fyrir frumlegasta, fjölbreyttasta, hæfileikaríkasta og best túlkaða dansinn. Einnig var veitt viðurkenning fyrir besta einstaklingsdansinn. Á miðvikudaginn og á föstudaginn verður aftur í boði í vali Dans, dans, dans! og vonumst við eftir jafngóðri þátttöku og í dag. Þetta var alveg frábært og börnin skemmtu sér konunglega! Það er greinilegt að þeim þykir gaman að dansa :)




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit