Fréttir og tilkynningar

Jólafrí

22.12.2011

Í Skýjaborgum er opið alla virka daga í jólafríinu og hluti barnanna mætir í okkar skemmtilegu dagskrá þessa daga.

Í gær fórum við á Þjóðminjasafnið að syngja lög og svo kom Gluggagægir og skemmti okkur með fíflalátum sínum.  Börnin fengu mandarínu og piparköku á meðan við biðum eftir að komast í fatahengið því örtröðin var svo mikil.  Eftir þessa góðu gönguferð fram og til baka í Þjóðminjasafnið var gott að koma aftur í Skýjó og fá sér gott nesti og leika svo frjálst.

Í dag fórum við niður að tjörn og gáfum öndunum brauð sem voru mjög ánægðar með það.  Svo skiptum við hópnum í tvennt, fórum á Borgarbókasafnið og Listasafn Reykjavíkur og drukkum í okkur smá menningu.  Nú eru börnin búin að næra sig og leika sér svolítið inni og farin aftur út að leika.  Á morgun verður góður dagur því þá verður farið í Norræna húsið að fylgjast með tónlistarmönnum í jóladagatalinu.

Nú eru að koma myndir frá þessum tveimur dögum á heimasíðuna :o)




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit