Gleðilegt nýtt ár!
06.01.2012
Við förum fersk af stað á nýju ári enda höfðum við það mjög huggulegt í jólafríinu. Við fórum á þjóðminjasafnið og sáum jólasvein, fórum á bókasafnið og listasafn Reykjavíkur, fórum í Norræna húsið, á skauta, kaffihús, bökuðum piparkökur og höfðum það huggulegt í Skýjaborgum.
Nú er þrettándinn mættur og jólunum lýkur þar með opinberlega í dag. Við minnum á brennuna sem verður á Ægissíðu í kvöld. Dagskráin er á heimasíðunni.