Klúbbastarf
25.01.2012
Nú er allt komið á fullt aftur í klúbbastarfinu og krakkarnir eru duglegir að skrá sig. Klúbbaskráningin fer fram í Skýjaborgum upp á vegg, þar skrá börnin sig á blað viðkomandi klúbbs.
Klúbbarnir sem eru í boði eru Leikir í íþróttasal á mánudögum (Hjördís), Egyptaland og múmíur á miðvikudögum (Arnar), Frönskuklúbbur á miðvikudögum (Auður), Hárgreiðslu og- skartgripaklúbbur á fimmtudögum og Sögu- og fantasíuklúbbur á föstudögum (Sunna).