Magnað myrkur
10.02.2012
Vetrarhátíð 2012 ( www.vetrarhatid.is ) hefur yfirskriftina MAGNAÐ MYRKUR og höfum við verið að skemmta okkur hér í Skýjaborgum með þessu þema. Við höfum búið til svakalega magnað myrkur hér og leikið okkur í því. Á þriðjudaginn fórum við í kjallara og lékum okkur í algjöru niðamyrkrki og tókum myndir út í loftið. Þær eru auðvitað mjög skrýtnar því þótt flassið lýsi allt upp augnablikið sem myndin er tekin vissi myndatökumaður ekkert hvort það myndi heppnast að hafa einhvern með á myndinni.
Í gær fórum við í búningaherbergi og fengum stóra plötu hjá smiðunum sem við settum fyrir gluggann og svart efni fyrir götin. Þá var orðið algjörlega dimmt. Tvær draugasögur voru sagðar og svo var farið í búninga og fleiri skrýtnar myndir teknar.
Þeir sem hafa áhuga á fleiri viðburðum ættu að kynna sér dagskrána á heimasíðu Vetrarhátíðar, til dæmis er safnanótt í kvöld og svo er dagskrá í Gerðubergi á morgun ( http://www.gerduberg.is/desktopdefault.aspx/tabid-3685/5623_view-5171 ).
Vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi á þessari skemmtilegu hátíð :o)