Frístundaheimilið Skýjaborgir Vesturbæjarskóli
Vesturvallagötu 10
101 Reykjavík
411-5730 / 695-5053
skyjaborgir@itr.is
Frístundaheimilið Skýjaborgir hefur verið rekið af ÍTR síðan haustið 2002. Skýjaborgir bjóða börnum í 1. og 2. bekk upp á vistun eftir að skóladegi lýkur til kl. 17:15. Einnig er opið í frístundaheimilinu þá daga sem skólinn er með starfsdaga og foreldraviðtöl en þá þarf að sækja sérstaklega um vistun þá daga. Skýjaborgir hafa aðstöðu á þremur stöðum: Vesturvallagötu 10 (hús á skólalóð), í skúr bak við húsið og inni í skóla. 1.-2. bekkur hefur aðsetur sitt á þessum stöðum en 3.-4. bekkur hefur flust í Frostheima, nýju safnfrístundina sem er staðsett við Frostaskjól (áður Þrekhúsið).
Hér má sjá foreldrahandbók frístundaheimilanna:
Gjaldskrá (breytist 1. febrúar 2012, sjá neðar).
Mánaðargjald frístundaheimilis er kr. 10.040
Síðdegishressing er kr. 2.900
Samtals:
5 dagar í viku kr. 12.940/mánuð
4 dagar í viku kr. 10.505/mánuð
3 dagar í viku kr. 8.065/mánuð
2 dagar í viku kr. 5.610/mánuð
1 dagur í viku kr. 3.170/mánuð
Ef nýtt er þjónusta kl. 8.00 - 14.00 á foreldradögum og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það kr. 1.500 á dag. Á ofangreindum dögum geta börnin eftir sem áður dvalið á frístundaheimilunum frá kl. 14.00 - 17.15. Þeir sem velja að greiða með boðgreiðslum (VISA eða Mastercard) fá afslátt af dvalargjaldi sem nemur kr. 150 á mánuði.
Ath. Gjaldskrárbreyting verður 1. febrúar 2012
|
Frístundagjald |
Síðdegishressing |
|
5 dagar í viku |
11.300 |
3.265 |
|
4 dagar í viku |
9.215 |
2.610 |
|
3 dagar í viku |
7.120 |
1.960 |
|
2 dagar í viku |
5.010 |
1.305 |
|
1 dagur í viku |
2.915 |
655 |
|
Morgunvistun |
1.690 |
|
Ef breyting verður á gjaldskrá verður það tilkynnt greiðanda með minnst mánaðar fyrirvara.
Foreldrar barna á frístundaheimilum ÍTR geta nýtt Frístundakortið til niðurgreiðslu dvalargjalda. Ekki er hægt að ráðstafa allri upphæðinni í einu heldur þarf að ráðstafa styrknum mánaðarlega eða þar til öll upphæðin hefur verið notuð. Sé barnið á frístundaheimili í september berst greiðsluseðill vegna dvalargjalda þann mánuð á bilinu 22.‐ 26. september. Sama dag er barnið lesið inn í Rafræna Reykjavík og hægt er að ráðstafa Frístundakortinu fram í næsta mánuð (október í þessu tilfelli) á bilinu 11. til 13. þess mánaðar er lokað fyrir ráðstöfun. Þegar búið er að ráðstafa Frístundakortinu er reikningur lækkaður í heimabanka en það getur tekið 1‐2 virka daga. Ekki verður sendur út nýr greiðsluseðill með lægri upphæð. Eingöngu er hægt að niðurgreiða dvalargjöld en sé barnið í síðdegishressingu þarf að greiða fyrir hana sérstaklega. Mikilvægt er að þeir sem ráðstafa Frístundakortinu greiði ekki greiðsluseðilinn fyrr en búið er að lækka hann í heimabanka. Sé greitt með greiðslukorti verður sú upphæð lækkuð á kortareikningi. Ef þið eigið í erfiðleikum með að fá lykilorð til að skrá ykkur í Rafræna Reykjavík eða að ráðstafa Frístundakortinu þá vinsamlegast snúið ykkur til Símavers Reykjavíkurborgar í síma 411‐1111 eða til þjónustumiðstöðvar í ykkar hverfi.
Leiðbeiningar um frístundakort: