Hér er uppskrift leikdeigi, svipað og tröllaleir en mýkri og endist vel í lokuðu plastíláti.
Setjið í pott:
200g hveiti
100g salt
2 tsk cream of tartar
1 msk olía
300 ml vatn með matarlit
Hitið og hrærið mjög vel þangað til blandan er orðin mjög þykk og stíft.
Takið deigið úr pottinum, kælið og hnoðið þangað til deigið er mjúkt og meðfærilegt.